
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

Jun 26, 2026
Jun 26, 2026
30 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti höldum við áfram ferð okkar um Postulasöguna. Nú fylgjumst við með fyrstu trúboðsferðinni, til Antíokkíu í Pisidíu, Kýpur og Perge.
Við skoðum boðskapinn, mótspyrnu og kraftaverk — meðal annars snertingu á lífi fólks, eins og rómverska landsstjórans, Sergíusar Páls.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jun 23, 2026
Jun 23, 2026
31 min
Þessi þáttur segir frá vexti kirkjunnar í Antíokkíu (um 45–47 e.Kr.), hvernig Barnabas sækir Sál (Pál) til að þjálfa hann og byggja upp söfnuðinn. Í Antíokkíu er Jesúfólkið fyrst kallað kristið. Við fylgjumst með því hvernig hópur umskurnarmanna leggur hart að heiðin-kristnum, að halda lögmál Móse - og deilum sem af því hlutust, en líka jákvæðri niðurstöðu.
Við lesum einnig um gríðarlega mikilvæga bænastund, þar sem Heilagi Andi velur og sendir þá tvo, Barnabas og Sál, í trúboð út um allt rómverska ríkið.

Jun 19, 2026
Jun 19, 2026
41 min
Í þættinum er farið yfir kafla 11–12 í Postulasögunni: vöxt safnaðarins í Antíokkíu, Barnabas uppörvara og hvernig heiðingjar taka kristni við kraft anda Guðs. Agabus spámaður varar við hungursneyð og söfnun fer fram til aðstoðar Jesúfólkinu í Júdeu.
Þá er fjallað um ofsóknir Heródesar Agrippa, aftöku Jakobs, fangelsun Péturs og undraverða lausn hans — auk ígrundunar um egóið og kærleikann; boðskap Jesú til okkar allra.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jun 16, 2026
Jun 16, 2026
24 min
Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Í Molanum er fjallað um sekt og sektarkennd, fyrirgefningu Guðs í Kristi og líf án fordæmingar.
Við förum einnig yfir upphaf kristniboðs á grísk-rómversku svæðunum og sérstakt mikilvægi borgarinnar Antíokkíu, sem vöggu kristninnar utan Ísraels. Jesúfólkið umbylti öllu með nýrri sýn á samfélag fólks.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jun 12, 2026
Jun 12, 2026
21 min
Í þessum þætti er sagt frá atburðum um árið 40 e.Kr.: Calígúla reyndi að valda uppnámi í Jerúsalem, sem ekki gekk eftir. Athyglin beinist að Pétri og heimsókn hans til Kornelíusar í Sesareu, þar sem hann prédikar um Jesú Krist.
Pétur fær mjög sterk og sérstök skilaboð, sem boða byltingarkennd viðhorf. - margir taka trú á Jesú Krist. Menningarmúrar falla og brýr byggjast milli fólks. Kærleikur Guðs er sameinandi kraftur. Ekki voru þó allir ánægðir.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jun 9, 2026
Jun 9, 2026
31 min
Velkomin í Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Við förum um Nýja testamentið og erum nú í Postulasögunni: Sál hittir Jesús á veginum til Damaskus og umbreytist frá ofsækjanda í hetju trúarinnar.
Þátturinn fjallar um ljósið af himni, sýnina, blinduna, Ananías og umbreytingu Sáls. Lykilatriði er tengingin milli Gamla og Nýja testamentisins. Nú er allt skoðað í ljósi Krists.
Söguþráðurinn varpar ljósi á frumkirkjunna, kraft, djörfung og ofsóknir - sem á reyndar allt við enn þann dag í dag.

Jun 5, 2026
Jun 5, 2026
42 min
Í þessum þætti er farið yfir atburði úr 8.kafla Postulasögunnar. Við fylgjumst með því hvernig Sál frá Tarsus tók til við að útrýma kirkjunni; hvernig útbreiðsla trúarinnar breyttist þegar Filippus boðaði í Samaríu; hvernig töframaðurinn Símon vildi kaupa kraft Heilags anda. Er hægt að kaupa, eða vinna sér inn gjafir Guðs?
Við skoðum líka eitt skrítnasta ferðalag sem nokkur hefur tekið, þegar Filippus ferðaðist 30 km leið norður með strönd Ísraels.

May 29, 2026
May 29, 2026
35 min
Í þessum þætti er farið yfir kafla 5-7 í Postulasögunni. Þarna segir sagan okkur frá fyrstu árum kirkjunnar; hvernig Andi Guðs vann og starfaði; hvernig Orðið var boðað með táknum og undrum; hversu ört söfnuðurinn stækkaði.
En, nærvera kirkjunnar olli miklum óróleika hjá ríkjandi aðilum og það leiddi til handtaka og ofsókna. Eldhugar kirkjunnar voru húðstrýktir og einn af fyrstu sjö djáknum kirkju heimsins, var líflátinn.
Þetta er saga um trú, kraft og hvernig boðskapurinn breiddist út þrátt fyrir mótstöðu og ofsóknir.
