
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

May 26, 2026
May 26, 2026
22 min
Velkomin í "Biblían á mannamáli", hlaðvarp fyrir lífið. Kirkjan í Jerúsalem er farin af stað og nú gerast hlutirnir hratt. Í Postulasögunni 3-4 fáum við að sjá sýnishorn af lækningakrafti Guðs.
Pétur og Jóhannes lækna lamaðan mann við musterið, sem vekur undrun og mikill fjöldi safnast saman. Pétur prédikar um Jesú Krist sem Messías, þar sem hann tengir boðskapinn við spádóma Gamla testamentisins. Yfirvöldum líkar ekki við það sem er að gerast og handtaka Pétur og Jóhannes.
Kaflarnir lýsa líka uppbyggingu samfélagsins meðal trúaðra sem deila eigum og stuðla að vexti kirkjunnar. Jósef, síðar kallaður Barnabas, birtist nú í frásögunni, en hann átti eftir að koma mikið við sögu.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

May 22, 2026
May 22, 2026
56 min
Ekki missa af þessu viðtali!
Hafliði Kristinsson, fjölskylduráðgjafi og fyrrverandi forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, segir frá krafti hvítasunnunnar í heiminum. Hann greinir frá uppruna og útbreiðslu hvítasunnuhreyfingarinnar, allt frá bandarískum vakningum og Azusa Street, til vaxtar í Brasilíu og á Íslandi. Þátturinn fjallar um verkan Heilags anda; tungual; persónulega reynslu og nærveru Guðs.
Hafliði segir okkur frá framgangi hreyfingarinnar á Íslandi og hvers má vænta ef fólk heimsækir Fíladelfíukirkjuna á sunnudagsmorgni. Áhrif Anda Guðs eru mikil í lífi fólks og mótar mjög trúarlífið.

May 19, 2026
May 19, 2026
33 min
Velkomin í þáttinn þar sem við ræðum hvítasunnuna og það sem gerðist í Postulasögunni: komu Heilags anda; prédikun Péturs; staðfestingu á upprisu Krists og umbreytingu sem leiddi til þess að þrjú þúsund tóku trú á Jesú.
Við skoðum hvernig Pétur breyttist frá afneitun til djörfungar; hvað upprisa Krists þýðir fyrir kristna trú og hvernig frumkirkjan lagði áherslu á lærdóm, samfélag, kvöldmáltíð og bænir.
Að lokum segjum við frá gesti sem verður í næsta þætti, Hafliða Kristinssyni, sem mun fjalla um Hvítasunnukirkjuna á Íslandi.

May 15, 2026
May 15, 2026
30 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Molinn er úr Galatabréfinu og síðan ræðum við hvítasunnudaginn. Hvað gerðist eiginlega, hvernig tengist það uppskeruhátíð gyðinga og hvað er Guð að gera?
Þátturinn ræðir örðugleika í trúnni, kærleika Guðs, nýjan sáttmála í blóði Jesú og merkingu þess sem gerðist — tungumál, kraft, samstöðu og kærleika.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

May 12, 2026
May 12, 2026
24 min
Þessi þáttur fjallar um uppstigningardaginn: Jesús reis frá dauðum, tók við dýrðarlíkama og steig til himna, eða hvarf í hina víddina. Þannig opnaði hann leið fyrir allt mannkynið.
Við skoðum svar Jesús til lærisveina sinna, við spurningu um ríkið; loforðið um Heilagan anda og boðskapinn um að verða vitnisburður um hann í Jerúsalem, Júdeu, Samaríu og allt til enda jarðar — og hvað þetta þýðir fyrir kirkjuna og trúarheiminn í dag.

May 8, 2026
May 8, 2026
27 min
Í þættinum höldum við áfram að skoða frumkirkjuna í rómverska heimsveldinu; sjálfsskilning hennar og nálgun á verkefnið. Allt var gjörbreytt; nú bjó Guð ekki lengur í húsi gerðu af manna höndum, heldur í hjörtum fólks.
Frumkirkjan var opin og alþjóðleg; enginn milligöngumaður nema Jesús. Kærleikur og þjónusta einkenndu hennar starf, og hún hafði djúp samfélagsleg áhrif þrátt fyrir ofsóknir. Þátturinn tengir þetta við kirkjulegt hlutverk í dag: að sýna kærleika Guðs í orði og verki.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

May 5, 2026
May 5, 2026
24 min
Þessi þáttur fjallar um áhrif upprisunnar á frumkirkjuna og hvers vegna boðskapurinn um upprisu ógnaði yfirvöldum Rómarveldis.
Rætt er um að upprisan sé ekki aðeins loforð um líf eftir dauða heldur kraftur til að leiðrétta óréttlæti og umbreyta heiminum og sköpuninni.
Þátturinn hvetur til að biðja, leita og knýja á - það verður opnað og innri maðurinn endurnýjast.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

May 1, 2026
May 1, 2026
22 min
Í þættinum finnum við Mola og hugleiðum orð Jesú um að hann ætli að búa okkur stað. Í ljósi orða hans, skoðum við sumar þeirra spurninga, sem mannkynið spyr sig að.
Svo förum við í Postulasöguna: 120 mann saman komin í loftstofu; bæn og val nýs postula (Matthías) og biðin fram að hvítasunnu. Við köllum eftir andlegri vakningu kærleikans hér á landi.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
