
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

Aug 8, 2026
Aug 8, 2026
34 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið.
Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin.
Lífið í Kristi er innan frá og út, ekki utan frá og inn.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Aug 4, 2026
Aug 4, 2026
24 min
Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress.
Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og lögmál Móse meðal ný-trúaðra og það styttist í það að Páll skrifi fyrsta bréfið sem finnst eftir hann í Nýja testamentinu. Páll skrifar bréfið til að verja fagnaðarerindið sem byggt er á Jesú Kristi einum - fagnaðarerindið sem hann boðaði.

Jul 31, 2026
Jul 31, 2026
30 min
Þessi þáttur byggir á Sálmi 121 og hvetur okkur til að líta upp til Guðs þegar vandamál og háir múrar lífsins virðast óyfirstíganlegir. Sjónarhorn sögunnar er Jeríkó, þar sem Jósúa og þjóðin gekk og söng til að sjá kraft Guðs virka - en eitt er það sem margir missa af!
Síðan er það lokahnykkurinn um fleininn í holdi Páls — mótstöðu innan kirkjunnar og ásakanir gegn boðun hans — og minnir á að náð Guðs nægir.
Þátturinn sameinar sögulegar frásagnir og persónulega uppörvun: leita hjálpar hjá Guði, treysta náðinni og halda áfram í trú.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jul 28, 2026
Jul 28, 2026
29 min
Velkomin í þáttinn „Biblían og mannamáli“ þar sem við ræðum um náðina, muninn á lögmáli og náð, og afleiðingar þess að meðtaka náð Krists í hjörtun.
Við skoðum nokkur bréf Páls, til að finna þar ákveðið samhengi frásögunnar. Ekki síst skoðum við ágreininginn um umskurnina og „fleininn“ sem Páll barðist við og þá hvernig máttur Krists birtist í veikleika, þjáningum og umbótum.
Kjarni þáttarins: náðin er ekki réttlæting til að lifa syndugu lífi, heldur kraftur sem frelsar, læknar og breytir lífi fólks.

Jul 24, 2026
Jul 24, 2026
30 min
Þessi þáttur fjallar um 15. kafla Postulasögunnar: menn frá Júdeu krefjast umskurðar fyrir heiðna trúaða í Antíokkíu og spratt upp hörð deila milli umskurnarsinna og Páls og Barnabasar. Málið leiddi til fundar í Jerúsalem þar sem Pétur, Jakob og postularnir ræddu og ákváðu að ekki skyldi krafist umskurðar af heiðnum kristnum.
Atburðirnir varpa ljósi á þau átök sem áttu sér stað um lögmálið og náðina, og mótun frumkirkjunnar.

Jul 21, 2026
Jul 21, 2026
20 min
Velkomin í Biblían á mannamáli: við höldum áfram í Postulasögunni og skoðum áhrif kirkjunnar árin eftir dauða, upprisu og uppstigningu Krists.
Þátturinn tengir sálm 107 og þemu um lífið sem skóla kærleika; þjáningu sem tímabundna; og innri endurnýjun sem leiðir til eilífrar vonar.
Sögulínan fylgir Páli og Barnabasi í för þeirra og heimkomu til Antíokkíu. Þar segir einnig frá tilskipun Kládíusar, um brottrekstur Gyðinga frá Róm.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Jul 18, 2026
Jul 18, 2026
37 min
Þessi þáttur fjallar um ferðalag Páls og Barnabasar til Lýstru, þar sem þeir lækna lamaðan mann; eru ranglega dýrkaðir sem Seifur og Hermes; og Páll er síðan grýttur til dauða.
Sagan kynnir einnig Tímóteus til sögunnar; lýsir því hvernig fyrstu kirkjurnar rísa, og tengir atburðina við bréf Páls síðar meir.
Þátturinn skoðar líka þemu um nær-dauða reynslu, trú, þol, kærleika og það hvernig líf í Kristi breytir samfélagi og einstaklingum.

Jul 13, 2026
Jul 13, 2026
25 min
Þessi þáttur fjallar um það hvernig allir hrasa í lífinu og um mikilvægi þess að bregðast rétt við: viðurkenna mistök, rísa á fætur og treysta á náð Guðs til umbreytinga.
Út frá dæmisögunni um týnda soninn og frá broti úr lífi Davíðs konungs, getum við lært um eðli Guðs og hversu mikilvægt það er að vakna til lífsins innra fyrir - það leiðir til lífs í kærleika.
