
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

Sep 4, 2026
Sep 4, 2026
41 min
Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls.
Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverulegt samfélagslegt samhengi frumkirkjunnar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Tilvísun: The Untold Story / Frank Viola

Sep 1, 2026
Sep 1, 2026
36 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn.
Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.

Aug 28, 2026
Aug 28, 2026
38 min
Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi.
Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan frá og út.
Í lokin ræðum við aðeins um þá þætti sem við þurfum að "aflæra", að mati þáttastjórnanda. - Rjúfum manngerða mynd hefndar-guðsins.

Aug 25, 2026
Aug 25, 2026
30 min
Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll eitt.
Þátturinn notar myndlíf Abrahams, Söru og Hagars til að skýra muninn á lögmáli og náð. Páll sýnir að réttlæting kemur vegna Krists, en ekki vegna ánauðar lögmálsins.
Loks hvetur þátturinn til að treysta Guði og láta Krist smám saman myndast í lífi okkar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Aug 21, 2026
Aug 21, 2026
29 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse.
Rædd eru megintök trúarinnar sem réttlætingu, að trú Abrahams kom á undan lögmálinu, og hvernig sönn, lifandi trú birtist í kærleika og góðum verkum – ávöxtum frelsisins. Lífið er skóli og námsefnið er kærleikur.

Aug 18, 2026
Aug 18, 2026
42 min
Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists.
Við útskýrum hvernig Kristur uppfyllir lögmálið, hvernig Heilagur Andi breytir hjörtum og hvernig sönn trú birtist í kærleika og verkum sem sameinar fólk í Kristi.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Aug 14, 2026
Aug 14, 2026
36 min
Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum.
Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu fyrir trú og lögmálsverkum; minnist Abrahams sem fyrirmynd trúar og undirstrikar að heilagur andi skapar innri breytingu sem ber sannan ávöxt.

Aug 11, 2026
Aug 11, 2026
36 min
Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál.
Hann leggur áherslu á að fagnaðarerindið sé frá Kristi, réttlæting sé fyrir trú en ekki af verkum lögmálsins, og að frelsi í Kristi leiði til kærleiks og breyttrar lífsstefnu.
Átökin voru miklu meira en orðaskak; þetta snerist ekki bara um orðanotkun.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
