
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

Oct 2, 2026
Oct 2, 2026
33 min
Páll og Sílas flæmdir úr Þessaloníku færa sig til Beroju, þar sem kristni nær fótfestu hjá gyðingum og konum úr efri stéttum. Páll fer síðan til Aþenu þar sem hann ræðir meðal annars við heimspekinga og heldur fræga ræðu um altari hins ókunna guðs - við skoðum söguna á bak við það altari.
Þátturinn tengir saman ferðalög, trúboð og heimspekilegar umræður - og sýnir hvernig Páll aðlagar boðskap sinn að menningu og leit að sannleika meðal ólíkra áheyrenda, án þess þó að breyta fagnaðarerindinu.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church.

Sep 29, 2026
Sep 29, 2026
32 min
Í þættinum er farið yfir ferðir Páls postula og fylgdarlið hans í Þessalóníku á annarri trúboðsferðinni: hvernig þeir boðuðu Krist sem Messías, urðu til breytinga meðal fólks og urðu fyrir mótstöðu vegna keisaradýrkunar og borgaræsings.
Sagan lýsir heimsóknum í samkunduhús, hittingi hjá Jason, uppreisn almennings, ákærum fyrir að raska friði. Við sjáum hvernig Páll, Sílas og Tímóteus brugðust við áskorunum og byggðu upp lifandi samfélag trúaðra.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church

Sep 25, 2026
Sep 25, 2026
37 min
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir Postulasöguna, kafla 16 - 17, þar sem Páll og Sílas eru í fangelsi í Filippí og syngja hástöfum. Jarðskjálfti losar fjötra þeirra. Fangavörðurinn og fjölskylda hans taka boðskapinn og snúa til trúar á Krist.
Þátturinn skoðar einnig hvernig fyrstu söfnuðirnir mynduðust, hlutverk kvenna eins og Lýdíu, menningu stórborga eins og Þessaloníku og hvernig trúin breytir lífi fólks þrátt fyrir ofsóknir og erfiðleika.

Sep 22, 2026
Sep 22, 2026
30 min
Páll postuli, Sílas, Tímóteus og Lúkas koma til Filippi eftir siglingu frá Tróas til Neapólis og göngu eftir Via Egnatia. Filippi er rómversk nýlenda með sterka keisaradýrkun og fámennan hóp gyðinga, þannig hittast trúaðar konur niður við ána, en ekki í samkunduhúsi.
Við ána prédikar Páll fyrir hópnum og Lýdía, efnuð kaupkona frá Þýatíruborg, tekur við boðskapnum, skírast og opnar heimilið sitt fyrir postulunum.
Ambátt með spásagnaranda fylgir hópnum og Páll rekur andann út í nafni Jesú. Eigendur ambáttarinnar reiðast og kalla saman mannfjölda; Páll og Sílas eru, barðir og hnepptir í fangelsi þrátt fyrir réttindi sem rómverskir ríkisborgarar.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Sep 18, 2026
Sep 18, 2026
24 min
Í þessum þætti ræðum við um Postulasöguna 15:36–41: Páll og Barnabas halda aftur til safnaðanna í Galatíu, en deila um að taka Markús með sér. Barnabas fer til Kýpur með Markúsi, en Páll tekur Sílas og síðar Tímóteus með sér í nýja trúboðsferð.
Við skoðum hvernig frásagan tengir allt saman og leiðir til bréfaskrifa postulanna. Innra líf safnaðanna hélt þeim sterkum þrátt fyrir átök og ofsóknir. Maður frá Makedóníu kemur og talar við Pál.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Ýmsar heimildir: Frank Viola - The Untold Story

Sep 15, 2026
Sep 15, 2026
31 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þættinum ljúkum við yfirferð á Jakobsbréfinu: skoðum ástandið innan safnaðanna, mismunun á milli ríkra og fátækra og boðskapinn um að trúin beri góðan ávöxt.
Við ræðum hvernig orð okkar og dagleg hegðun afhjúpa hjartað, notum myndlíkingar um beisli og stýri varðandi stjórn tungunnar og skoðum áherslur um kærleika og réttlæti.

Sep 11, 2026
Sep 11, 2026
23 min
Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál.
Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksríkum verkum. Við byrjum og endum með bæn um að sjá Guðs nærveru í daglegu lífi.

Sep 8, 2026
Sep 8, 2026
30 min
Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum.
Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.
