
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

4 hours ago
4 hours ago
25 min
Velkomin í Biblían á mannamáli. Þessi þáttur fjallar um Pál postula og för hans frá Korintu; samstarf við Prískilu, Akvílas, Tímóteus og Sílas; vinnu þeirra og þrautir við að stofna söfnuði Guðs ríkis. Við sjáum hvernig gyðingar ásaka Pál fyrir að brjóta lögmál þeirra en landstjórinn Gallíon neitar að taka málið og stöðvar réttarhöldin.
Söfnuðurinn í Korintu er ungur og óþroskaður. Páll gagnrýnir sundrungu þeirra og sjálfshyggju, sem gerir það að verkum að þau skilja ekki dýpri hluti fagnaðarerindisins. Þættinum lýkur með för fjórmenninga til Efesus og lokum annarrar trúboðsferðar Páls.

4 days ago
4 days ago
27 min
Velkomin í Biblían á mannamáli: við ræðum Síðara Þessaloníkubréf Páls, skrifað um árið 51 e.Kr., og skoðum helstu efnisþætti bréfsins.
Kaflarnir fjalla um misskilning varðandi endurkomu Jesú Krists; ofsóknir og hópa sem villa fyrir söfnuðinum; auk gagnrýni á þá sem vilja ekki vinna. Páll hvetur til þrautseigju og ábyrgðar í söfnuðinum. Hvernig í ósköpunum stóðts fólkið allar þessar þrengingar?

7 days ago
7 days ago
29 min
Í þessum þætti förum við í gegnum atburði Postulasögunnar kafla 18 og fylgjum Páli í þjónustu hans í Korintu: prédikanir, mótstaða og kraftaverk, ásamt því hvernig kirkjan vex í kærleika og samfélagi við son Guðs.
Við skoðum einnig þemu eins og persónulegt samband við Guð, ákvörðun Páls um nasíreaheit, og misskilning um endurkomu Drottins, sem leiðir til bréfsins sem við lesum næst.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church

Oct 27, 2026
Oct 27, 2026
36 min
Þessi þáttur ræðir hvernig Páll bregst við ofsóknum og hvetur söfnuðinn til kærleika og trausts. Hann fjallar einnig um hina kristnu von, um upprisu hinna sofnuðu og gönguna á vegi Jesú Krists. Við erum lifandi sem börn ljóss og kærleika.
Hlaðvarpið tengir Ritninguna við nútímann; fjallar örstutt um nær-dauða reynslu; daglegt líf trúarinnar og boðar kraft kærleika og ljóss til að yfirstíga ótta og dauða.

Oct 23, 2026
Oct 23, 2026
29 min
Velkomin í „Biblían á mannamáli“. Í þessum þætti förum við yfir 2.kafla Fyrra Þessaloníkubréfs: bakgrunn Páls, ofsóknir sem hann mætti og hvers vegna eining og fjölskylduhugsun í kirkjunni skiptir svo miklu máli.
Rætt er um boðskap Páls — að hann predikaði ekki til að þóknast mönnum heldur Guði — og hvernig hið lifandi orð Guðs (sjá Jóhannes 15) vinnur í hjörtum fólks; hvernig Guð sniðlar til, svo við berum meiri ávöxt kærleikans.
Þátturinn tekur aðeins á fölskum kenningum og andstöðu, og endar með gleði Páls yfir vexti og kærleika í Þessaloníku: kjarninn er að elska Drottin og náungann.

Oct 20, 2026
Oct 20, 2026
29 min
Þessi þáttur fjallar um fyrra bréf Páls til Þessaloníkumanna (um 51 e.Kr.). Páll hvetur söfnuðinn til að halda fast við trúnna þrátt fyrir ofsóknir, sýnir eigin heiðarleika og útskýrir kraft heilags anda sem snertir hjörtu fólks.
Þátturinn greinir myndina af Guði sem föður ("abba") og kirkjuna sem fjölskyldu — bræður og systur — og leggur áherslu á kærleika í verki og vonina um endurkomu Krists.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson

Oct 16, 2026
Oct 16, 2026
28 min
Í þessum þætti ræðum við um aðdraganda fyrra bréfs Páls til Þessaloníkumanna, fréttirnar sem hann fékk frá Sílasi og Tímóteusi og hvernig þær lýsa stöðu safnaðanna: vaxandi trú, ofsóknir og innri erfiðleikar.
Þátturinn snýr einnig að ásökunum gegn Páli um græðgi og illt hugarfar; og spurningum um þjáningu, dauða og von í ljósi eilífrar áætlunar Guðs.

Oct 13, 2026
Oct 13, 2026
24 min
Þessi þáttur fjallar um komu Páls til Korintu; andlega þreytu hans eftir baráttu og fangelsi og hvernig hann hóf að boða í borg sem var rík af verslun, þrælahaldi, trúarbrögðum og lauslæti.
Umfjöllunin kynnir borgarandann, íþróttahöldin, félagslegu átökin og hlutverk Akvílasar og Priskillu, sem samstarfsmanna Páls — og boðskapinn um að Guð sýnir styrk sinn í okkar veikleika.
Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Heimildir: Frank Viola, The Untold Story of the New Testament Church
