
Saga - Menning - Samhengi - Trú
Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Tónlist: Enginn elskar eins og þú - höf. Hjalti Gunnlaugsson

Bókin Betri Heimur
Ef þú vilt nálgast eintak af bókinni "Betri Heimur", þá geturðu sent póst á halldor.lar@outlook.com til að panta þér eintak.
Bókina er einnig hægt að kaupa í bókabúðum Eymundsson og Forlagsins.
To get the English version, and you are in Iceland, please contact us at halldor.lar@outlook.com
Outside of Iceland? Both versions are found on Amazon.com

Þú ræður ferðinni
Við erum hópur fólks á öllum aldri, alls staðar af landinu, sem erum á ferðalagi saman um lendur og leyndardóma Biblíunnar. Þetta er samt sem áður þitt ferðalag og þú ræður ferðinni hjá þér.
Hver þáttur hefur að geyma gullmola dagsins, sem alltaf er gott að hlusta á, þó svo þú náir ekki að hlusta á neitt annað þann daginn. Þú getur hlustað á hluta hvers þáttar, eða allan þáttinn og ef þú sleppir einhverjum dögum, þá má alltaf hlusta á þá síðar. Stakir þættir frá árinu 2025 eru líka í boði. Það er ekki stóra málið að klára eitthvað sérstakt innan ársins, því við höldum bara áfram á nýju ári.
Það er alltaf hægt að hlusta á alla þættina hér á halldorlar.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum, eins og til dæmis Apple Podcasts; Spotify og Podbean App.
Velkomin/nn í hópinn og góða ferð!

Okkar samhengi
Um aldir hefur Biblían talað inn í samfélag fólks um víða veröld og mótað heilu menningarheimana. Ísland er þar engin undantekning og óhætt er að segja, að margt af því besta sem við eigum í okkar menningu á rætur sínar í boðskap Biblíunnar.
Þekking á Biblíunni og því hvað hún gefur okkur, hefur verið á nokkru undanhaldi í samfélaginu undanfarin ár. Þegar grefur undan þekkingu og skilningi, getur losnað um samfélagslímið og ýmiss gildi látið undan síga. Í þáttunum skoðum við samhengi hlutanna.
En það eru ekki aðeins samfélagsleg gildi sem Biblían gefur, heldur einnig ríka sýn á trú og andlegt líf. Fjöldi Íslendinga leitar andlegs jafnvægis og friðar; unga fólkið leitar í trúna og kirkjuna eftir tilgangi og leiðsögn. Umfjöllunarefni þáttanna er meðal annars þetta andlega líf og ræktun þess. Biblían er lesin með linsu kærleikans.

Kaffibollar og bækur
Hlaðvarpsgerð kostar auðvitað sitt, en "Biblían á mannamáli" er frítt hlaðvarp, fyrir alla landsmenn. Fyrir áhugasama, er þó hægt að styðja við hlaðvarpið með kaupum á einum eða fleiri kaffibollum.
Þið smellið á Kaffibollar hlekkinn í stikunni efst á síðunni. "Buy me a coffee" vefsíðan býður ekki enn upp á færslur í ísl. krónum, og því birtist upphæðin í US Dollurum. Hægt er að styðja hlaðvarpið með eingreiðslu, eða mánaðarlega, og er þá hakað í viðkomandi reit. Með fyrirfram þökk fyrir stuðninginn!
Ef þú vilt góðar bækur til að lesa, eða hlusta á, þá smellirðu á Bækur hlekkinn efst á síðunni. Þá færist þú yfir á "Buy me a coffee" síðuna og og sérð strax það efni sem er í boði. Af sömu ástæðu og með kaffibollana, þá birtist verðið í US Dollurum. Fyrir þau sem eru utan Íslands, er mælt með að versla frekar á Amazon.com
Episodes

Mar 29, 2026
Mar 29, 2026
51 min
Velkomin í Biblíuna mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Í páskavikunni ætlum við, í fjórum þáttum, að skoða atburðarásina í lífi Jesú þessa síðustu daga hans á jörð. Í þessum fyrsta þætti, á Pálmasunnudegi er það innreiðin inn í Jerúsalem.
Við viljum skilja bakgrunninn; hvar var staðan í Jerúsalem; inn í hvaða umhverfi er Jesús að koma, osf. Það voru nefnilega tvær fylkingar að koma til borgarinnar þennan dag, tvær "skrúðgöngur" af algjörlega ólíkum uppruna.

Mar 24, 2026
Mar 24, 2026
31 min
Velkomin í "Biblían á mannamáli". Í þessum fyrsta þætti af fjórum, í páska-þáttaröðinni, rifjum við upp hvernig og af hverju við lesum Biblíuna í ljósi Jesú Krists.
Við skoðum stigvaxandi opinberun Guðs og hvernig Jesús er þar lykillinn að skilningi okkar á Orðinu. Þar með hefjum við ferðina inn í atburði páskanna.
Hver veit nema eitthvað nýtt ljúkist upp fyrir okkur, eitthvað sem getur gjörbreytt sýn okkar á hlutina.

Mar 20, 2026
Mar 20, 2026
22 min
Sæl verið þið og velkomin. Í þessum þætti byrjum við á molanum, þar sem skoðum hvernig Guð leiðir og tekur okkur inn í fjölskyldu sína — sjálfsmynd okkar byggist á náð hans, ekki eignum, framgangi, mistökum eða veikleikum.
Síðan ræðum við markverða kennslu Jesú úr Markúsarguðspjalli, um unga manninn sem spyr hvað hana skorti til að öðlast eilíft líf. Jesús kallar hann til að losa sig undan fjötrum auðæfanna og þjóna aðeins Guði. Eru þá peningarnir illir? Við skoðum það.

Mar 17, 2026
Mar 17, 2026
25 min
Molinn kemur úr Sálmi 91; hvernig við getum falið líf okkar í Guðs hendur, treyst á vernd hans og kærleika í ölduróti lífsins.
Markús 9:30–37 fjallar um að Jesús boðaði dauða sinn og upprisu og kenndi lærisveinum sínum að sannur leiðtogi þjónar öðrum. Hann kenndi þjónandi forystu, langt á undan öllum. Hér heyrum við hann kenna um það hvernig Guðs ríki kemur á jörðu og að náið samfélag Guðs og manna sé þar lykilatriði.

Mar 13, 2026
Mar 13, 2026
1 hr 15 min
Velkomin í hlaðvarpið okkar, Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. - Þessum þætti má enginn missa af!
Í þættinum er rætt við Birki Má Kristinsson, eiganda og framkvæmdastjóra Náttúruhlaupa. Birkir segir okkur frá lífi sínu og starfi fyrir Náttúruhlaup; hvernig útivist, hreyfing og tenging við náttúruna hafa styrkt bæði líkama og sál. Við ræðum líka persónulega trúarupplifun Birkis og andlegt ferðalag, í leit hans að djúpum tilgangi og raunveruleika.

Mar 10, 2026
Mar 10, 2026
24 min
Velkomin í hlaðvarpið: Þátturinn fjallar um Veg Guðs á jörð; mikilvægi einlægrar bænar og hvernig trú skapar frið, gleði og miskunn.
Persónulegar sögur og umræður um kraftaverk með brauðin sýna nákvæmni Guðs og að náð hans nær til alls mannkyns. Hvatning til að biðja frá hjartanu og lifa á vegi kærleikans.

Mar 6, 2026
Mar 6, 2026
27 min
Í þættinum er fjallað um merkingu kraftaverksins, þegar Jesús mettar fyrst 5.000 og síðan 4.000 manns. Hann spurði lærisveinana spurninga, sem þeir svöruðu rétt en skildu þó ekki merkinguna á bak við kraftaverkið.
Við ræðum táknræna merkingu talnanna: fimm, tveir og tólf. Hvaða leyndardómur býr þar að baki?
Þátturinn tengir kraftaverkið við andlegt ferðalag og hvernig lifandi orð Guðs gefur andlegt líf, innri næringu og skilning.

Mar 3, 2026
Mar 3, 2026
28 min
Við lesum úr Markúsarguðspjalli, köflum sex og átta. Markmiðið er að skoða vel tvö mjög álíka kraftaverk, þar sem Jesús mettaði fjölda fólks, með lítið milli handanna.
Við ræðum mjög skrítnar spurningar Jesú og skilningsvana lærisveinana, sem svöruðu rétt en skildu samt ekki neitt. Þátturinn hjálpar okkur að leita innsæis og skilnings í daglegu lífi.
